143. löggjafarþing — 12. fundur,  30. okt. 2013.

vísun skýrslna til nefnda.

[15:02]
Horfa

Forseti (Kristján L. Möller):

Með bréfum dagsettum 16., 24. og 25. október sl. hefur forseti óskað eftir því við stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, samanber ákvæði 8. töluliðar 1. mgr. 13. gr. þingskapa, að hún fjalli um eftirfarandi skýrslur Ríkisendurskoðunar: skýrslu um endurskoðun ríkisreiknings 2012, skýrslu um Viðlagatryggingu Íslands, skýrslu um kostnað, skilvirkni og gæði háskólakennslu og skýrslu um samningamál SÁÁ.