143. löggjafarþing — 12. fundur,  30. okt. 2013.

myglusveppur og tjón af völdum hans.

96. mál
[17:33]
Horfa

Össur Skarphéðinsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil upplýsa hv. þm. Vilhjálm Árnason um að þetta var nú ekki versta hugmyndin sem hann hefur komið fram með á sinni lífsfæddri ævi, að stinga upp á því að ég mundi gegna forstöðu fyrir slíkum sjóði, því að partur af þeim mörgu heimum sem ég hef lifað í er m.a. tryggingaheimurinn. Ég var einu sinni aðstoðarforstjóri lítils tryggingafélags, svo það komi fram, þannig að málið er mér með fjarlægum hætti skylt.

Mig langar að þakka hv. þingmanni fyrir góðan skilning hans og góðar viðtökur við þessu máli. Sömuleiðis var það ánægjuefni að heyra hjá hv. þingmanni tíðindi af því að það voru ekki bara orðin tóm hjá hæstv. forsætisráðherra heldur er vinna í gangi við að kanna hvernig hægt sé að setja upp vernd fyrir þá sem verða fyrir tjóni sem við gætum kannski orðið sammála um að flokkast undir einhvers konar sameiginlega vá, jafnvel náttúruhamfarir. Í mínum augum eru þetta náttúruhamfarir þó að þær séu ekki eins og hinar hefðbundnu. Það er jákvætt og ég fagna því mjög.

Ég er líka alveg sammála hv. þingmanni um að engin ástæða er til að stofna einhvern sérstakan sjóð út af þessu. Í reynd held ég að það þurfi ekkert annað en að breyta lögum um viðlagatrygginguna, fella þetta undir hana. Svona mál hafa alltaf komið upp áður með löngu millibili og þá voru það stök hús. Núna er þetta klasi húsa og hægt er að rekja ástandið í mörgum tilvikum til sameiginlegra orsaka. Mér finnst það því alveg borðleggjandi að það falli undir viðlagatryggingu.

Er hv. þingmaður mér sammála um að sá sjóður sem hæstv. forsætisráðherra er að láta vinna að núna ætti að dekka tjón eins og þetta? Það er spurning mín til hv. þingmanns.