143. löggjafarþing — 12. fundur,  30. okt. 2013.

myglusveppur og tjón af völdum hans.

96. mál
[17:35]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að fullyrða nákvæmlega hvaða leið verður farin. Þegar málið kemur til nefndarinnar mun upphaf þeirrar vinnu byrja. Við munum kalla eftir umsögnum og þá vænti ég þess að við fáum svolitla umræðu um það.

Ég tel það alls ekki útilokað að slíkur sjóður verði settur á stofn. Ég held að verkefnið hjá okkur sé það að fólk standi ekki berskjaldað frammi fyrir þessu vandamáli þegar það kemur upp. Það þarf að vera einhver leið sem fólk getur leitað í. Hvaða leið það er — ég nefndi dæmi áðan að tryggingafélögin, framkvæmdaraðilinn og efnissalinn hafi náð samkomulagi fyrir austan þannig að það er ekki útilokað að hagsmunaaðilar eins og tryggingafélög komi að einhverju leyti að þessu. Við þurfum bara að vinna í þessum málum og það er það sem við erum að kalla eftir hérna, umræðu um hvernig sé best að gera þetta.

Ég get alveg tekið undir með hv. þm. Össuri Skarphéðinssyni að það gæti verið vænlegur kostur að þessi sjóður komi að því.