raforkustrengur til Evrópu.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir þingsályktunartillögu um að fela framkvæmdarvaldinu, þ.e. iðnaðarráðherra, að afla upplýsinga þeirra er þörf er á til þess að við hér á Alþingi sem og samfélagið allt getum unnið að upplýstri og vandaðri ákvörðun um lagningu sæstrengs til Evrópu.
Nýverið lagði hæstv. iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Ragnheiður Elín Árnadóttir, fram á Alþingi skýrslu ráðgjafarhóps um raforkustreng til Evrópu. Sú skýrsla byggir á vinnu ráðgjafarhóps sem þáverandi iðnaðarráðherra og núverandi hv. þm. Oddný G. Harðardóttir skipaði í júní 2012 og var falið að kanna möguleikann á því að leggja sæstreng fyrir raforku á milli Íslands og Evrópu. Hópnum var ætlað að greina samfélagsleg og þjóðhagsleg áhrif verkefnisins, tæknileg og umhverfisleg atriði og þar fram eftir götunum. Ráðgjafarhópurinn, sem var þverfaglegur og þverpólitískur, skipaður fulltrúum úr öllum flokkum auk helstu hagsmunaaðila, skilaði skýrslu sinni þann 26. júní síðastliðinn. Skýrslan hljóðaði upp á einróma niðurstöðu. Það voru engin sérálit eða því um líkt og það er mjög ánægjulegt. Þessi breiði hópur var sammála í ályktun sinni um að frekari upplýsingar þyrftu að liggja fyrir áður en unnt væri að taka ákvörðun um framhald verkefnisins.
Enn fremur lagði ráðgjafarhópurinn fram til ráðherra verkefnaáætlun í sjö liðum sem næstu skref í þessari umræðu.
Þingsályktunartillaga þessi miðar að því að hrinda í framkvæmd án tafar þeim tillögum sem settar eru fram í skýrslu ráðgjafarhópsins. Þær þarf að kanna vel sem undanfara ákvörðunar en ekki með ákveðna niðurstöðu í huga. Þetta leggjum við í Bjartri framtíð mikla áherslu á. Við erum að afla okkur upplýsinga til þess að geta tekið upplýsta ákvörðun og það er aðalmálið. Ráðherra hefur lagt skýrslu ráðgjafarhópsins fram til umræðu á Alþingi. Það er mat flutningsmanna, allra þingmanna í Bjartri framtíð, að slík umræða sé ekki tímabær þar sem nauðsynlegt er að svara fyrst spurningum sem koma fram í skýrslu ráðgjafarhópsins og kortleggja alla þætti verkefnisins áður en hægt er að ræða næstu skref eða taka ígrundaðar ákvarðanir. Þetta er mjög mikilvægt svo að við séum ekki að tala okkur hás hérna í þessum sal á einhverjum grundvelli þar sem fólk væntir ýmislegs án þess að við höfum nógu mikla vissu um það sem við erum að ræða. Það er mikilvægt að við séum öll á sama stað og getum talað út frá sömu hlutum.
Í skýrslu ráðgjafarhópsins kemur fram að þýðingarmikil atriði eru enn háð umtalsverðri óvissu, eins og áður sagði. Meðal þeirra eru forsendur sem hægt er að afmarka betur með frekari rannsóknum og viðræðum við mögulega samningsaðila og nýtast munu í reiknilíkani fyrir þjóðhagslega arðsemi verkefnisins, svo sem orkuverð, orkumagn, lengd samninga og eignarhald. Með sama hætti er unnt að vinna frekar með útkomur úr því reiknilíkani, til að mynda um áætluð áhrif á orkuverð innan lands, hugsanleg ruðningsáhrif, aukningu þjóðartekna o.fl.
Því er lagt til hér að fela ráðherra að hrinda tillögum ráðgjafarhópsins í framkvæmd og ráðast án tafar í þá vinnu sem lögð er til í skýrslu hópsins, samanber verkefnaáætlun í sjö liðum á bls. 14–15 í skýrslunni. Ég held að það sé ágætt að ég fari stuttlega í gegnum tillögurnar sjö svo að við séum upplýst um hvað um er að ræða.
1. Það vantar greiningu á þjóðhagslegri hagkvæmni. Það er tillaga um að þessari greiningu verði fram haldið samhliða því sem aflað verði nýrra upplýsinga. Jafnframt verði gerð ítarleg kostnaðar- og ábatagreining þar sem metin verða möguleg áhrif á raforkuverð innan lands og áhrif þess á raforkukostnað heimila einkum á köldum svæðum auk áhrifa á fjölda starfa og verðmæti þeirra. Jafnframt verði metin nánar áhrif á rekstrarskilyrði atvinnugreina sem nota mikla raforku, svo sem stóriðju og garðyrkju, sem og á aðrar atvinnugreinar sem þjóna þeim eða tengjast með beinum eða óbeinum hætti.
2. Að ráðuneytið eða Orkustofnun greini sviðsmyndir mögulegrar orkuöflunar og virkjanaraðar, í samræmi við aðferðafræði rammaáætlunar — og þetta er mjög mikilvægt — fyrir mismunandi flutningsgetu tengingar.
3. Að Landsnet fái heimild til að hefja viðræður, í samstarfi við Landsvirkjun og eftir atvikum aðra raforkuframleiðendur, við viðeigandi rekstraraðila flutningskerfis í Bretlandi um tengingu flutningskerfanna, viðskiptalíkan og eignarhald sæstrengs. Jafnframt er lagt til að Landsnet og Landsvirkjun kanni leiðir til fjármögnunar á undirbúningsrannsóknum og hugi að hugsanlegu samstarfsfyrirkomulagi vegna sæstrengsins.
4. Að ráðuneytið leiti leiða til að afla ofangreindra upplýsinga svo sem með könnunarviðræðum við bresk stjórnvöld á grundvelli viljayfirlýsingar sem ráðherrar beggja landa undirrituðu 30. maí 2012. Markmið þeirra viðræðna yrði að kanna með hvaða hætti sala á íslenskri orku gæti fallið undir breska löggjöf um ívilnanir fyrir endurnýjanlega orku með áherslu á langtímasamninga til þess að minnka áhættu við orkuöflun á Íslandi.
5. Að skilgreina skilaleið auðlindarentu — og þetta er líka mjög mikilvægt, því að til þess er nú leikurinn gerður, að þjóðin fái eitthvað fyrir sinn snúð — sem myndast kann af raforkusölu um sæstreng til ríkissjóðs, sveitarfélaga, almennings, atvinnulífs og annarra haghafa óháð eignarhaldi á virkjunum, dreifikerfi og umbreytistöð á Íslandi.
6. Að meta áhrif eignarhalds á sæstrengnum með tilliti til afhendingaröryggis raforku innan lands.
7. Að ráðuneytið hefji athugun á því hvaða lögum og reglugerðum þarf að breyta komi til þess að ráðist verði í lagningu raforkustrengs til Evrópu.
Eins og áður sagði erum við í Bjartri framtíð ekki að segja að málið sé endilega að leggja sæstreng til Evrópu. Við erum að segja að við vitum ekki, út frá þeim upplýsingum sem við höfum núna, hvort það sé ákjósanlegt. Það er margt sem bendir til þess að það sé til bóta fyrir íslenskt samfélag að kanna það nánar og við leggjum til að við förum í þá umræðu og höfum umræðuna vandaða og upplýsta. Því leggjum við til að ráðherra fari í það að kanna þessar sjö tillögur svo að við hér á Alþingi getum rætt málið á uppbyggilegan hátt án allra getgátna um hvað verða skal.