143. löggjafarþing — 14. fundur,  1. nóv. 2013.

störf þingsins.

[10:37]
Horfa

Steingrímur J. Sigfússon (Vg):

Herra forseti. Ég hef áhuga á að eiga orðastað við formann efnahags- og viðskiptanefndar um hagvaxtarhorfur, m.a. tengt nýframkominni hagspá ASÍ. Í inngangi þeirrar hagspár segir að dauft sé yfir íslensku efnahagslífi og horfur fram undan dauflegar og sérstaklega vísað til lítilla fjárfestinga.

Núverandi ríkisstjórn eða þeir flokkar sem að henni standa og talsmenn þeirra lögðu mikla áherslu á mikilvægi fjárfestinga og það var helst á þeim að heyra hér á síðasta kjörtímabili að fyrir kosningar hefði aðalvandamálið í því sambandi verið þáverandi ríkisstjórn. Það þyrfti lítið annað til en að þeir kæmust til valda, mundu smella fingrum sínum og þá yrðu horfur hér allt aðrar og betri og hagvöxtur færi á fulla ferð. Engu að síður er þetta niðurstaða ASÍ og í hagspánni er réttilega bent á að þær fjárfestingar sem þó séu fram undan séu nær allar ákvarðanir fyrri ríkisstjórnar, framkvæmdir eins og Norðfjarðargöng, Vaðlaheiðargöng, væntanlegar fjárfestingar á Bakka, og helsta framlag núverandi ríkisstjórnar, eins og það er orðað, sé að hún hafi sett fingraför sín á fjárfestingar með því að falla frá verkefnum sem fyrri ríkisstjórn hafði ákveðið.

Niðurstaðan er dapurleg. Spáð er um 1,7% hagvexti í ár og aðeins liðlega 2% hagvexti á næsta ári. Því væri fróðlegt að heyra formann efnahags- og viðskiptanefndar eða aðra talsmenn stjórnarflokkanna útskýra fyrir okkur hverju þetta sæti og hvað hafi reynst öðruvísi vaxið en þeir gerðu ráð fyrir á síðasta kjörtímabili eða rétt fyrir kosningar, að eingöngu þyrfti stjórnarskipti í landinu til að hér mundi blómstra hagvöxtur og bati verða mikill í hagkerfinu. Hvað hefur breyst? Er formaður efnahags- og viðskiptanefndar sammála því mati hagdeildar Alþýðusambands Íslands, eða hagspá þess, að það sem sé heldur að þyngja í horfunum séu fingraför núverandi ríkisstjórnar sem hafi dregið úr fjárfestingum í landinu?