143. löggjafarþing — 14. fundur,  1. nóv. 2013.

störf þingsins.

[11:00]
Horfa

Frosti Sigurjónsson (F):

Virðulegi forseti. Í lok júní á þessu ári sendi efnahags- og viðskiptanefnd skriflega fyrirspurn til Fjármálaeftirlits um viðskiptahætti Dróma og spurði hvort þeir væru í samræmi við lög. Þann 29. október síðastliðinn birti svo Fjármálaeftirlitið gagnsæistilkynningu á heimasíðu sinni þar sem greint er frá athugun á starfsháttum Dróma hf. Þar kemur skýrt fram að eftirlitið telur Dróma ekki fara að lögum en að Drómi hyggist kæra þá niðurstöðu Fjármálaeftirlitsins.

Í gagnsæistilkynningunni segir, með leyfi forseta:

„Athugunin leiddi í ljós að Drómi hf. hefði ekki hlutast til um afléttingu veðbanda þegar krafa hefði talist að fullu greidd miðað við endurútreikning þrátt fyrir ákvæði 6. mgr. 18. gr. vaxtalaga. […] Drómi hf. telur sig óbundinn af ákvæðum vaxtalaga eins og þeim var breytt með lögum nr. 151/2010 þar sem tiltekin ákvæði þeirra brjóti í bága við stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944.

Hlutverk dómstóla er að úrskurða um hvort lög teljist samræmast stjórnarskrá. Eftirlitsskyldir aðilar þurfa að gæta þess að hlíta lögum sem sett hafa verið með stjórnskipulega réttum hætti, þ. á m. vaxtalögum. Ef eftirlitsskyldur aðili telur að lög standist ekki ákvæði stjórnarskrár þarf viðkomandi aðili að láta reyna á þá afstöðu fyrir dómstólum.“

Ég vil taka undir þennan skilning Fjármálaeftirlitsins. Í niðurlagi tilkynningarinnar kemur meðal annars fram, með leyfi forseta:

„Því lagði Fjármálaeftirlitið fyrir Dróma hf. að grípa til ráðstafana í samræmi við ofangreinda niðurstöðu og gera Fjármálaeftirlitinu grein fyrir þeim.

Athygli er vakin á því að Drómi hf. hefur ákveðið að höfða mál til ógildingar á framangreindri ákvörðun Fjármálaeftirlitsins.“

Þar til niðurstaða fæst úr málshöfðun Dróma á hendur eftirlitinu hlýtur Dróma eins og öðrum eftirlitsskyldum aðilum að bera að fara að gildandi lögum og tilmælum Fjármálaeftirlitsins. Annars getur Fjármálaeftirlitið gripið til viðeigandi ráðstafana svo sem dagsekta, stjórnvaldssekta eða beint kröfu til héraðsdóms um að slitastjórn verði vikið (Forseti hringir.) frá að hluta eða heild.