143. löggjafarþing — 15. fundur,  4. nóv. 2013.

hámarksskipunartími forstöðumanna menningarstofnana.

56. mál
[16:55]
Horfa

mennta- og menningarmálaráðherra (Illugi Gunnarsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Katrínu Jakobsdóttur fyrir þessa fyrirspurn. Því er kannski ekki beint auðsvarað í sjálfu sér, þeirri fyrirspurn sem hér er sett fram, því þarna munu vegast á ýmis sjónarmið. Það kom reyndar fram í máli hv. fyrirspyrjanda að það geta verið rök fyrir því til að tryggja samfellu í starfi að möguleikar séu á því að forstöðumenn viðkomandi stofnana geti setið áfram lengur en fimm eða tíu ár. En á móti kemur, og það á kannski einkum og sér í lagi við á menningarsviðinu, að það kann að vera viðurhlutamikið að sami einstaklingurinn sitji of lengi í viðkomandi menningarstofnun og hafi þannig í gegnum starf sitt og embætti um of mótandi áhrif, eða í það minnsta í of langan tíma, á það sem fer fram á því menningar- eða listasviði.

Ég skal játa það, virðulegi forseti, að ég hef ekki myndað mér endanlega afstöðu í þessu máli. Mér finnst að rök séu í báðar áttir, ef svo má segja, en þó er rétt að hafa það í huga hvað varðar til dæmis Þjóðleikhúsið, að þar er gert ráð fyrir því að að loknum fimm árum sé staðan auglýst aftur laus til umsóknar. Sá sem gegnir stöðunni getur sótt um á móti öðrum og þá fari fram einhvers konar mat. Í sjálfu sér má segja að með því að hafa fyrirkomulagið þannig að stofnunum skuli vera skylt að auglýsa laust starf forstöðumanns eftir fimm ár þá sé að nokkru komið til móts við það sjónarmið að ekki gangi að einstaklingar sitji um of yfir heilu menningarstofnunum eða menningargeirum, ef svo má að orði komast. Og um leið er náttúrlega augljóst að sá sem situr fyrir í embætti á betri möguleika en aðrir á að uppfylla þau skilyrði sem sett eru varðandi starfið og umsóknina, til dæmis varðandi starfsreynslu á viðkomandi sviði.

En í það minnsta verði sú kvöð sett á stjórn viðkomandi listastofnunar að hún þurfi að fara í gegnum þennan prósess, hún þurfi að réttlæta það og rökstyðja að endurráða viðkomandi starfsmann. En ég ítreka það að ég hef ekki lagt á það endanlegt mat hvort heppilegt sé að setja einhvers konar hámörkun þarna á og því þakka ég sérstaklega fyrir þessa fyrirspurn af því að hún er til þess fallin að vekja athygli á þessu máli. Þetta er nefnilega nokkuð mikilvægt mál, þó að það sé alveg rétt sem hér hefur komið fram að það hefur ekki notið mikillar athygli hér í þingsölum eða verið rætt mikið. Það er því nauðsynlegt að fara yfir þetta, rökin með og á móti, af því að samfélag okkar er það smátt í sniðum, ef svo má segja, að áhrif og ítök einstaklinga geta orðið óeðlilega mikil ef þeir sitja of lengi í einstaka embættum. Ég mun þess vegna fara vel yfir þetta og kalla m.a. eftir þeim skoðunum sem hér hafa komið fram hjá hv. þingmanni og ráðgjöf þar um.

Hvað varðar sviðslistarlögin, sem hér var sérstaklega spurt eftir, efa ég það, virðulegi forseti, að þau muni koma fram á þessu þingi, ég efa það, enda eru þau ekki í þeirri málaskrá sem liggur fyrir. Það er þó ekki útilokað en ég tel að líklegra sé að það bíði þá næsta árs og væntanlega þá haustþings ef vel gengur.