143. löggjafarþing — 15. fundur,  4. nóv. 2013.

hámarksskipunartími forstöðumanna menningarstofnana.

56. mál
[17:01]
Horfa

mennta- og menningarmálaráðherra (Illugi Gunnarsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég vil ítreka þakkir mína til fyrirspyrjanda, hv. þm. Katrínar Jakobsdóttur, um þetta mál. Þau rök sem hér um ræðir eru ekki einföld viðureignar. Það má t.d. spyrja sig: Ef við hefðum afburðaeinstakling sem stýrði hér menningarstofnun, einstakling sem væri á alþjóðamælikvarða, mjög hæfan í sínu fagi og veruleg sátt væri um störf viðkomandi, hefði náð góðu samstarfi við grasrótarsamtök, stýrði menningarstofnun sinni af festu og sýndi um leið mikið frumkvæði í störfum sínum, mundum við vilja að viðkomandi einstaklingur yrði látinn fara óháð því hvernig starfið hefði verið innt af hendi eða hver staðan væri varðandi þá menningarstofnun? Það má líka ljóst vera í fámennu samfélagi eins og okkar að afburðaeinstaklingar á þessu sviði eru ekki á hverju strái. Það þarf því að horfa til þess.

Hins vegar er fólgin í því hætta fyrir framþróun okkar í menningarlífinu, eins og hv. þm. Katrín Jakobsdóttir rakti hér ágætlega, að einstaklingar sitji of lengi í valdamiklum embættum, ef nota má slíkt orðalag, í ákveðnum listastofnunum og verði því um leið einhvers konar dragbítar á framfarir og þróun. Það má ræða slík sjónarmið.

Ég ítreka að ég hef ekki enn þá alveg gert upp hug minn í þessu efni og ætla mér svolítinn tíma til þess að fara í gegnum þetta. Ég er mjög opinn fyrir því að fá hugmyndir og athugasemdir frá hv. þingmönnum. Þess vegna er þessi umræða hér mjög þörf og væri óskandi að við gætum tekið oftar umræðu í þingsalnum um menningarpólitísk viðfangsefni eins og þetta því að það skiptir máli hver afstaða okkar hér í þinginu er til slíkra spurninga.