störf þingsins.
Virðulegur forseti. Sem kunnugt er tel ég afar mikilvægt að okkur hér í þinginu gefist beinn og milliliðalaus kostur á skoðanaskiptum um stærstu mál þjóðarinnar við hæstv. forsætisráðherra. Þess vegna er alveg sérstakt fagnaðarefni að forsætisráðherra mun hér á fimmtudagsmorguninn flytja þinginu skýrslu um stöðuna í skuldamálum heimilanna. Það er fagnaðarefni vegna þess að nú er runninn upp nóvember og eins og við öll vitum hafa verið nokkuð misvísandi skilaboð frá stjórnarflokkunum og jafnvel yfirlýsingar sem bentu til þess að það ætti að fresta nóvember.
Ég skora eindregið á hæstv. forsætisráðherra að nýta þetta tækifæri í þinginu í beinni útsendingu frammi fyrir alþjóð í upphafi nóvembermánaðar til að taka af allan vafa um það (Gripið fram í: Ótrúlegur, Helgi.) hvað eigi að gera í skuldamálum heimilanna og hverjar stóru línurnar í þeim málum eru. Þetta eru stærstu óvissuatriðin í efnahagsmálum þjóðarinnar en auðvitað líka varðandi fjárhag einstaklinga og fjölskyldna í stórum stíl. Hæstv. forsætisráðherra hefur upplýst á opinberum vettvangi að hann hafi kynnt sér stöðuna á vinnunni í þeirri nefnd sem er að vinna að málunum og þær tillögur sem þar kunni að koma fram og því er ákaflega mikilvægt að allri óvissu sem hægt er að eyða núna strax verði eytt núna strax á fimmtudagsmorguninn þegar okkur gefst færi á því að ræða þetta hér í þinginu í tvo tíma. Ég fagna því.