um fundarstjórn.
Herra forseti. Ég ber virðingu fyrir hv. þm. Sigrúnu Magnúsdóttur, ekki síst fyrir þau störf sem hún hefur unnið á vettvangi borgarstjórnar Reykjavíkur. Ég varð þess heiðurs aðnjótandi að vinna með henni þar um fjögurra ára skeið og hef ekki átt neitt sökótt við þá ágætu þingkonu.
Þess vegna viðurkenni ég það alveg fyllilega að mér sárnaði að hv. þingmaður kæmi hér og bæri mig ómaklega sökum um að ég fari óvirðulegum orðum um forseta lýðveldisins. Hún talaði um þingmenn í fleirtölu, það eru bara tveir þingmenn sem hafa verið að gefa út bækur sem hugsanlega flokkast undir endurminningar. Ég vildi í fyllstu vinsemd mælast til þess af hv. þingmanni að hún gæfi sér tíma til að lesa bókina áður en hún notar ræðupúlt Alþingis sem vettvang til að tjá sig um hana.
Ég get fullyrt að hv. þingmaður getur ekki hafa lesið stóran hluta af þessari bók vegna þess að það hefur enginn nema einn — og hann stendur hér.