störf þingsins.
Virðulegi forseti. Nú hafa verið í umræðunni í fjölmiðlum þau orð hv. þm. Vigdísar Hauksdóttur, formanns fjárlaganefndar, að skoða mætti að hækka vaxtaálag á námslán hjá námsmönnum sem ekki skila sér heim að námi loknu. Þessi orð hennar hafa valdið óróa og ugg hjá þeim námsmönnum sem eru í námi núna, bæði innan lands og erlendis, og hafa vakið litla hrifningu úti í þjóðfélaginu.
Mér finnst þessi hugsun líkjast því sem var hér fyrr á öldum að menn væru í vistarböndum. Mér finnst það mjög gamaldags hugsun að ætla að reyna að fá ungt fólk hingað heim og nýta menntun sína í uppbyggingu landsins í velferðarkerfinu og atvinnulífinu með því að hóta álögum á vexti og þvinga fólk heim og loka landinu. Mér finnst að við ættum frekar að hugsa á uppbyggilegum nótum og beita hvötum til að fá ungt vel menntað fólk hingað heim til að byggja hér upp íslenskt efnahagslíf með okkur.
Ég hef verið mjög hrifin af þeirri hugmynd að nýta hugmyndina um jákvæða hvata úti á landsbyggðinni, að fá ungt menntafólk út á landsbyggðina með jákvæðum hvötum sem væru þá möguleikar á að fella niður námslán eða breyta þeim í styrki að hluta eftir ákveðnum reglum, eins og víða er í Noregi.
En við getum ekki vænst þess að ungt fólk hafi mikinn áhuga á að koma hingað heim eins og skorið er niður í vísinda- og rannsóknasjóðum og eins og skattkerfisbreytingar varðandi nýsköpunarfyrirtæki eru þar sem að skattafslættir eru felldir niður. Við verðum að byrja að vinna með fólki en ekki að þvinga það aftur heim með svipu.