143. löggjafarþing — 17. fundur,  6. nóv. 2013.

flutningur Landhelgisgæslunnar til Reykjanesbæjar.

37. mál
[17:59]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Þetta er í þriðja skipti sem ég er einn af flutningsmönnum á þingsályktunartillögu þar sem lagt er til að Alþingi feli ríkisstjórn að undirbúa flutning Landhelgisgæslunnar til Keflavíkurflugvallar. Tillagan var flutt tvisvar sinnum á síðasta kjörtímabili og er flutt aftur núna. Í öllum tilfellum voru og eru allir hv. þm. Suðurkjördæmis á tillögunni sem ætti að gefa henni meira vægi og þunga í umræðunni.

Hv. þm. Silja Dögg Gunnarsdóttir fór mjög vel yfir þau ágætu rök sem eru fyrir því að færa Landhelgisgæsluna til Keflavíkurflugvallar til framtíðar, bæði sem lúta að framtíðarþörfum Gæslunnar og að ávinningi svæðisins. Hv. þm. setti fram gagnrýni á skýrslu sem gerð var á árinu 2011 um hagkvæmni þess að fara með Gæsluna suður til Keflavíkur á Keflavíkurflugvöll. Hún gagnrýndi ýmsar forsendur sem gefnar voru og reyndar gerðu skýrsluhöfundar sjálfir fyrirvara um að ekki væru allar forsendur inni sem þyrftu að vera ef horfa ætti til langrar framtíðar fyrir Gæsluna. Ég ætla ekki að endurtaka ræðu hv. þm. Silju Daggar Gunnarsdóttur sem var ágæt, eins og ég sagði hér áðan, en mig langar samt að nefna þrennt.

Í fyrsta lagi þarf Landhelgisgæslan húsnæði til framtíðar litið. Hún þarf hentugt húsnæði, það þarf að gera ráð fyrir því að byggja þurfi yfir starfsemina. Á Ásbrú á Keflavíkurflugvelli er tilbúið húsnæði sem ríkið á. Ríkið á allar þessar byggingar og þær standa tilbúnar, sérstaklega hannaðar fyrir flugtengda þjónustu eða þjónustu og aðstöðu sem Landhelgisgæslan þarf á að halda. Þetta er því praktískt fyrir ríkissjóð. Það er praktískt atriði að horfa til Keflavíkurflugvallar og þeirra fasteigna sem ríkið á þar þegar hugað er að framtíðarbyggingum fyrir Landhelgisgæsluna.

Annað er að eftir herinn fór nánast á einni nóttu standa eftir byggingar sem voru fyrir starfsemi hersins en eins íbúðir og aðrir innviðir sem eitt sinn hýstu sex þúsund íbúa. Það skiptir líka máli að laða starfsemi að staðnum til að hleypa lífi í svæðið sem er núna hverfi í Reykjanesbæ. Þarna standa stórar byggingar og stór hluti af þeim sex þúsund manna bæ sem var sérstakur á sínum tíma og ríkið á. Hluti ávinningsins er að nýta þessar eigur ríkisins og glæða um leið lífi eða koma á auknu lífi í samfélaginu á Ásbrú.

Í þriðja lagi skiptir þetta miklu máli fyrir Suðurnesjamenn sem hafa heldur betur þurft að taka dýfurnar frá árinu 2006, bæði þegar herinn fór og eins þegar efnahagshrunið skall á okkur. Við þurfum nauðsynlega á fjölbreyttari atvinnutækifærum að halda og við fengjum það með þessum flutningi. Ávinningurinn er þrísleginn, ef svo mætti segja, fyrir okkur Suðurnesjamenn og einnig fyrir ríkissjóð, þarna er hagur beggja.

Ég vil styðja tillögu hv. þingmanns og flutningsmanns þessarar þingsályktunartillögu um að gerð verði önnur úttekt þar sem teknar verða inn fleiri forsendur og meðal annars starf Landhelgisgæslunnar til framtíðar, vöxtur hennar og uppbygging. Þannig verður tekinn hinn raunverulegi kostnaður og hinn raunverulegi ávinningur við að flytja starfsemi Landhelgisgæslunnar til Suðurnesja. Það er svo sannarlega von mín að það takist núna í þriðja sinn að vinna þingsályktunartillöguna áfram þannig að allt saman endi með góðri áætlun um framtíðaráform fyrir Landhelgisgæsluna og uppbyggingu hennar og í kringum hana á Keflavíkurflugvelli.