143. löggjafarþing — 18. fundur,  7. nóv. 2013.

útibú umboðsmanns skuldara á Akureyri.

[10:43]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Í tengslum við fjárlagafrumvarpið sem verið er að vinna að og umræður í samfélaginu, sérstaklega af hálfu hagræðingarhóps ríkisstjórnarinnar, langar mig að beina fyrirspurn til hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra sem gleymdist að tilkynna í upphafi. Þar er talað um hagræðingu, fækkun starfsfólks, sameiningu stofnana og ýmislegt fleira og því fer maður að hugleiða ýmislegt.

Ég fór hringinn í kjördæmi mínu í kjördæmavikunni og hef setið fundi fjárlaganefndar með sveitarstjórnum víðs vegar um land þar sem kemur meðal annars fram að fólk hefur áhyggjur af störfum sem hafa verið flutt út á land af hálfu hins opinbera. Það hefur verið byggðastefna ansi margra ríkisstjórna fram til þessa og það á við um þá sem nú situr að markmið hennar er að færa opinber störf út á land. Umboðsmaður skuldara hefur núna ákveðið að loka útibúi sínu á Akureyri og ég spyr hvort ráðherrann telji sig geta beitt sér fyrir því að af því verði ekki. Þetta útibú hefur sinnt fjölskyldum og einstaklingum á Eyjafjarðarsvæðinu en einnig tekið verkefni frá höfuðborgarsvæðinu. Um 12% mála komu inn á þeirra borð og ég hef eftir áreiðanlegum heimildum að þar hafi málin gengið oft og tíðum mun hraðar fyrir sig en á höfuðborgarsvæðinu. Þetta eru ekki nema tvö störf en þau skipta miklu máli í hinu stóra samhengi og ég spyr því ráðherra hvort hann muni beita sér fyrir því að þessu útibúi verði ekki lokað.