143. löggjafarþing — 18. fundur,  7. nóv. 2013.

þjónusta umboðsmanns skuldara við landsbyggðina.

[10:52]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Eygló Harðardóttir) (F):

Virðulegur forseti. Ég þakka áhugann á starfsemi umboðsmanns skuldara. Við gætum kannski líka tekið umræðu um Vinnumálastofnun, sem ég hef verulegar áhyggjur af, og þætti hennar. Það er náttúrlega mjög erfitt að horfa fram á skera þurfi niður nokkurs staðar. Ég held að ég hafi sagt það nokkrum sinnum þegar ég kom upp í ræðu sem stjórnarandstæðingur að ég hefði töluverðan skilning á því að það væru ekki auðveldar ákvarðanir sem þáverandi stjórnvöld þurftu að taka. Þetta eru heldur ekki auðveldar ákvarðanir sem við erum að taka sem stöndum frammi fyrir þeim vanda sem ríkisfjármálin hafa verið í.

Ég tel að mjög mikilvægt sé að opinberar stofnanir sinni öllu landinu, ég ítreka það. Það gildir um umboðsmann skuldara og það gildir um allar aðrar stofnanir sem eru hjá mér og það er raunar líka afstaða mín gagnvart öðrum stofnunum í öðrum ráðuneytum. Að sjálfsögðu er hlutverk þeirra að sinna þjónustu við alla landsmenn en ekki bara suma. Það hefur verið áherslan í þeim hugmyndum og lausnum sem við höfum verið að skoða í tengslum við hvernig við getum fengið meira, meiri þjónustu við landsmenn, að huga sérstaklega að því hvernig sé hægt að treysta þjónustuna hringinn í kringum landið.

Ég nefndi áðan í svari við hv. þm. Bjarkeyju Gunnarsdóttur að eitt af því sem ég hef séð sem helstu tækifærin í því sem snýr að þjónustustofnun við fatlað fólk er að hægt verði að efla þjónustuna hringinn í kringum landið. Ég get raunar ítrekað það sem ég sagði í fyrra svari mínu hvað það varðar, að sjálfsögðu er það þannig að opinberar stofnanir eiga að sinna þjónustu við alla landsmenn.