143. löggjafarþing — 18. fundur,  7. nóv. 2013.

aðgerðir vegna skuldavanda heimila á Íslandi, sbr. ályktun Alþingis nr. 1/142, munnleg skýrsla forsætisráðherra.

[13:26]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (P) (um fundarstjórn):

Forseti. Ég vil koma hér upp, út af því að maður hefur ekki tök á því að bera af sér sakir, vegna lokapunkts ræðu hæstv. forsætisráðherra. Það hefur hvergi komið fram og það er ómaklegt að setja hlutina upp á þann veg að ástæða fyrir seinaganginum með þessi mál sé minni hlutanum að kenna. Minni hlutinn hefur ekki gert neinar tilraunir til að standa í vegi fyrir þessum tillögum hæstv. forsætisráðherra. Því finnst mér ómaklegt að hann gefi það í skyn í lokaorðum sínum á þennan ríka og sterka hátt.