143. löggjafarþing — 19. fundur,  11. nóv. 2013.

beiðni þingmanna um upplýsingar.

[15:06]
Horfa

Vigdís Hauksdóttir (F):

Virðulegi forseti. Það skal upplýst hér og nú að formaður fjárlaganefndar, sem hér stendur, fékk umrætt bréf frá forsætisráðuneytinu klukkan hálfþrjú í dag. Ég fór með það strax í ljósritun og bað þingverði um að koma tillögum hagræðingarhópsins ásamt bréfi með skýringum frá hæstv. forsætisráðherra í hólf þingmanna þannig að þeir voru örugglega búnir að fá þetta fimm mínútum fyrir þrjú. Ég tel því að málið sé úr sögunni.