143. löggjafarþing — 19. fundur,  11. nóv. 2013.

beiðni þingmanna um upplýsingar.

[15:12]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Forseti vill eingöngu árétta það sem fram hefur komið áður. Það er auðvitað á valdi einstakra þingnefnda að kalla eftir gögnum af þessu taginu. Forseti hafði hins vegar af því atbeina með sérstökum hætti núna áðan að þau gögn sem um hafði verið beðið yrðu send þingnefndinni sem bað um þau og heyrir nú að við það hafi verið staðið. Það var gert áður en þessi gögn voru að öðru leyti gerð opinber.