143. löggjafarþing — 19. fundur,  11. nóv. 2013.

skuldamál heimilanna.

[15:25]
Horfa

Katrín Jakobsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Mig langar að halda áfram umræðu um skuldamálin í kjölfar skýrslu sem hér var gefin í síðustu viku um skuldamál heimilanna.

Eins og fram kom í fjölmiðlum var ýmsum spurningum þar varpað fram en þeim ekki öllum svarað. Ég hafði vonast eftir því að hæstv. forsætisráðherra mundi svara nokkrum þeirra spurninga sem ég notaði tækifærið í þeirri umræðu til að spyrja hann um. Mig langar að nota tækifærið hér og minna á þessar spurningar. Það kom klárlega fram í máli hæstv. forsætisráðherra að tillögur um úrbætur í skuldamálum heimila eru á lokametrum. Það er frumvarp í undirbúningi. Því finnst mér mikilvægt að Alþingi Íslendinga sé upplýst um hvort það sé ekki virkilega komin hugmynd, gróf hugmynd, um umfang þessara tillagna. Hæstv. forsætisráðherra sagði í umræðunum á fimmtudag að hluti þess svigrúms sem reiknað væri með að mundi skapast við samninga við kröfuhafa yrði nýttur við þetta. Ég er forvitin að heyra, og veit að allir hv. þingmenn hljóta að vera það líka, hvert umfangið verður, hverju við megum reikna með. Í ljósi þess að væntanlega koma þessi frumvörp fram á allra næstu vikum hlýtur það að liggja fyrir.

Mig langar líka að inna hæstv. forsætisráðherra aftur um það hvort einhverjar af þeim tillögum sem eru búnir að fara í gegnum ríkisstjórn hafi verið kynntar og hvort búið sé að hleypa þeim áfram.

Að síðustu langar mig að spyrja á ný um þak sem hæstv. forsætisráðherra nefndi. Hann nefndi að líklega yrði aðgerðin almenn en sett þak á aðgerðina. Mig langaði að spyrja um hvort búið væri að útfæra það á hverju þakið ætti að vera, hvort það ætti að vera á fjárhæð skulda eða hvort það ætti að miðast við tekjur eða eignir eða eitthvað annað slíkt. Ég vonast til að fá svör við þessum spurningum.