143. löggjafarþing — 20. fundur, 12. nóv. 2013.
stjórn fiskveiða.
153. mál
Virðulegi forseti. Við getum dregið alls konar ályktanir af þessum árum eftir á en ég tel það ekki til neins. Voru ekki bara efni fyrir ráðherrann að endurskoða ákvörðun sína eftir að þessi fréttatilkynning kom frá ráðuneytinu? Varð hún ekki bara til þess að ýta undir það að hann endurskoðaði málið ef þetta lá svona ljóst fyrir og ef hann hafði þetta á pappír?