143. löggjafarþing — 21. fundur,  13. nóv. 2013.

störf þingsins.

[15:16]
Horfa

Freyja Haraldsdóttir (Bf):

Virðulegi forseti. Ég hef verið svolítið hugsi síðustu tvo daga yfir viðbrögðum hv. þm. Brynjars Níelssonar og hæstv. innanríkisráðherra Hönnu Birnu Kristjánsdóttur við vangaveltum annarra þingmanna um vinnubrögð og verklag lögreglu í Gálgahraunsmálinu og varðandi hælisleitendur. Hæstv. innanríkisráðherra sagði í ræðu sinni 12. nóvember sl. í kjölfar umræðu um stöðu flóttamanna og meðferð þeirra, með leyfi forseta, að ráðherra ætlaði ekki „að blanda sér í, hafa skoðanir á eða fella dóma um einstaka lögregluaðgerðir. Það er ekki hlutverk ráðherra.“

Hæstv. innanríkisráðherra sagði jafnframt í umræðu um framgöngu lögreglunnar gegn mótmælendum í Gálgahrauni, með leyfi forseta:

„Nýleg könnun á trausti til lögreglunnar í landinu sýnir að 77% almennings bera traust til lögreglunnar. Mér finnst það ekki bera vitni um að menn telji að lögreglan sinni ekki hlutverki sínu vel.“

Ég er hjartanlega sammála því að ráðherra eigi ekki að blanda sér í einstakar lögregluaðgerðir og fagna því að nýleg könnun sýni ríkt traust til lögreglu en það breytir því ekki að ég tel mikilvægt að í þessum þingsal geti farið fram fagleg og upplýst umræða um starfshætti og verklag lögreglunnar líkt og annarra embætta og starfsstétta, enda byggi hún á lögum og stefnu sem hér eru búin til. Jafnframt vil ég benda á að sú áhersla sem kom fram í máli ofangreindra í umræðum um hælisleitendur og birtist ágætlega í eftirfarandi orðum hv. þm. Brynjars Níelssonar, með leyfi forseta:

„Það liggur auðvitað ekkert fyrir í málinu um að brotin hafi verið mannréttindi. Ég get bent þingmönnum á það að hægt er að bera undir dómstóla rannsóknaraðgerðir lögreglu, hverjar sem þær eru, um réttmæti þeirra, og handteknir menn eiga auðvitað rétt á verjanda til að gæta hagsmuna sinna.“

Það er líka rétt í sjálfu sér en við getum ekki horft fram hjá því að valdastaða hælisleitenda er ekki góð í samanburði við aðra hópa og hafa þeir ekki greiðar leiðir til dæmis vegna skorts á lögfræðiaðstoð, túlkaþjónustu o.fl. til að vernda sig.

Lögreglan er bæði mikilvæg og um leið valdamikil starfsstétt og því er eðlilegt að við sem hér erum í þjónustu við fólkið í landinu veigrum okkur ekki við því að ræða opinskátt það sem betur má fara og það sem vel er gert, þar sem og annars staðar, með það að markmiði að fá það besta út úr starfi ólíkra stétta sem gegna lögbundnum hlutverkum og skipta okkur öll máli.