143. löggjafarþing — 21. fundur,  13. nóv. 2013.

störf þingsins.

[15:28]
Horfa

Svandís Svavarsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Enn er sótt að Þjórsárverum. Baráttan fyrir stækkun friðlandsins hefur staðið í 40 ár og var mikill léttir þegar fyrir lá tillaga um stækkun þar sem virkjunarkosturinn Norðlingaölduveita var innan marka stækkaðs friðlands. En nú eru breytt áform uppi.

Í nýrri yfirlýsingu Náttúruverndarsamtaka Íslands segir, með leyfi forseta:

„Náttúruverndarsamtök Íslands mótmæla harðlega öllum áformum Landsvirkjunar og umhverfisráðherra um Norðlingaölduveitu. Með þessum áformum er gengið þvert gegn lögum um rammaáætlun sem kveða skýrt á um að virkjunarkosti í verndarflokki beri að friðlýsa. Virkjunarkosturinn Norðlingaölduveita er í verndarflokki rammaáætlunar en Landsvirkjun og umhverfisráðherra hyggjast hafa þau lög að engu.

Verði af byggingu Norðlingaölduveitu yrði í fyrsta sinn ráðist í virkjunarframkvæmdir vestan Þjórsár og þar með raskað ósnortinni landslagsheild svæðisins og lífríki Þjórsárvera ógnað. Þessi fyrirhugaða aðför umhverfisráðherra og Landsvirkjunar að Þjórsárverum er sérlega blygðunarlaus þar sem gert var ráð fyrir að með rammaáætlun og fyrirliggjandi friðlýsingarskilmálum Umhverfisstofnunar um stækkun friðlandsins í Þjórsárverum væri loks komin sátt um algjöra verndun veranna enda hefur Umhverfisstofnun ítrekað lagt til að Norðlingaalda yrði innan stækkaðs friðlands.

Náttúruverndarsamtök Íslands heita á alla náttúruunnendur að sameinast gegn þessum áformum Landsvirkjunar og umhverfisráðherra og tryggja varanlega friðun Þjórsárvera.“

Ég tek eindregið undir þessa yfirlýsingu og hvet náttúruverndarsinna hér á Alþingi til að gera slíkt hið sama.