aukatekjur ríkissjóðs.
Virðulegi forseti. Umrætt gjald er hugsað til þess að standa undir kostnaði við skiptin. Fyrst og fremst er um að ræða að í þeim tilvikum sem engar eignir eru í viðkomandi búum þarf að vera til staðar lágmarkstrygging til að standa undir kostnaði við störf bústjóra. Verði gjaldið lækkað eða fellt niður vegna þeirra sérstöku aðstæðna sem hafa skapast hér eftir fall bankanna situr eftir spurningin um hvaðan sú greiðsla á að koma. Ég vil í fyrsta lagi segja að ég deili áhyggjum þingmannsins vegna þess að svo virðist sem gjaldið sé helsta hindrunin fyrir því að margir fari þá leið sem að öðru leyti virðist vera óumflýjanleg, þ.e. að gefa sig upp til gjaldþrotaskipta vegna þess að eignir duga ekki fyrir skuldbindingum.
Við vinnslu þessa frumvarps kom þetta ekki til sérstakrar skoðunar en hins vegar hefur það verið til athugunar í velferðarráðuneytinu með hvaða hætti við gætum mögulega fjármagnað breytingu á þessari gjaldtöku tímabundið. Í því sambandi hafa nokkrar leiðir verið til skoðunar, m. a. hvort þær tekjur sem hafa runnið til reksturs embættis umboðsmanns skuldara gætu verið sá tekjustofn sem gæti komið að gagni hér. Við erum ekki komin fram með frumvarp um það efni en ég veit að sú leið er til skoðunar hjá velferðarráðherra.