143. löggjafarþing — 22. fundur,  14. nóv. 2013.

aðgerðir til að draga úr reglubyrði atvinnulífsins og efla samkeppni.

158. mál
[14:28]
Horfa

forsætisráðherra (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Jú, stjórnvöld leitast við að vinna eftir þessu frumvarpi nú þegar. En það er hárrétt ábending sem hv. þingmaður kemur hér með, oft og tíðum skapast vandamál vegna þess að tengingar þvert á ráðuneyti skortir, þ.e. samræmingu og samhæfingu þar á milli.

Það er sérstakt úrlausnarefni sem er svo sem ekki leyst með þessu máli þó að það hjálpi þar til vegna þess að þarna skapast vettvangur á vissan hátt til að samræma og benda á hvað betur megi fara og þá skiptir engu máli á sviði hvaða ráðuneytis það er. Þó að frumvarp komi frá einu ráðuneyti getur nefndin bent á að annað ráðuneyti gæti kannski gert hlutina öðruvísi til þess að markmiðið næðist. Þetta hjálpar þar til en til viðbótar við þetta vinnum við að því að mynda betri tengingar þvert á ráðuneytin til þess að ná þessari samræmingu sem vissulega hefur skort á.