143. löggjafarþing — 23. fundur, 18. nóv. 2013.
varamenn taka þingsæti.
Borist hafa bréf frá hv. 5. þm. Norðausturkjördæmis, Líneik Önnu Sævarsdóttur, og 4. þm. Suðvesturkjördæmis, Árna Páli Árnasyni, um að þau geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Í dag taka því sæti á Alþingi sem varamenn fyrir þau Hjálmar Bogi Hafliðason og Margrét Gauja Magnúsdóttir. Margrét Gauja hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa að nýju.
[Hjálmar Bogi Hafliðason, 5. þm. Norðaust., undirritaði drengskaparheit að stjórnarskránni.]