náttúruvernd.
Virðulegur forseti. Nú eru liðnir sex mánuðir frá því að hæstv. ráðherra tók við starfi og fjórir mánuðir til 1. apríl. Ég er viss um að við hefðum getað búið til skilgreiningu og skýrt betur hugtakið „ræktað land“ á þeim tíma. Af því tilefni langar mig til að spyrja: Hvað hefur hæstv. ráðherra gert á þeim tíma til að undirbúa jarðveginn til að hefja þessa vinnu og nýta tímann sem best? Vegna þess að mér sýnist af lestri athugasemda við lagafrumvarpið að það sé ekkert í því sem hér er talið upp sem ekki sé hægt að laga í meðförum þingsins á þeim tíma sem er til stefnu.
Annað sem mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra út í, af því að hann nefnir sérstaklega aukinn kostnað samhliða þessum breytingum og nýju lögunum, reyndar er búið að draga til baka kostnaðaraukann sem átti að lenda á sveitarfélögunum og það sem eftir stendur eru 105 milljónir aukreitis sem kemur úr ríkissjóði út af nýjum náttúruverndarlögum. Þykir hæstv. ráðherra það of mikill peningur?