náttúruvernd.
Herra forseti. Mig langar einfaldlega að vita: Í hverju er metnaður hæstv. umhverfisráðherra gagnvart málaflokknum fólginn? Ég held að þetta hljóti að vera eitthvert snautlegasta mál sem nokkur umhverfisráðherra hefur flutt, að fella bara úr gildi á einu bretti náttúruverndarlög í heild sinni, nýlega endurskoðuð eftir mikla undirbúningsvinnu. Það er eins og hæstv. ráðherra sé fastur í bakkgírnum.
Það var einhvern tíma sagt um ítölsku skriðdrekana að þeir hefðu einn gír áfram og fjóra gíra aftur á bak. Er hæstv. umhverfisráðherra eitthvað skyldur þeim að þessu leyti? Er það metnaður hæstv. ráðherra að komast bara sem hraðast og sem lengst aftur á bak í umhverfismálum á Íslandi? Getur hæstv. ráðherra kveikt eitthvert örlítið ljós fyrir okkur í ljósi þessa dapurlega máls, að hann hafi samt einhvern metnað fyrir málaflokkinn sem hann er að sögn sagður sinna með annarri hendinni ofan úr atvinnu- og nýsköpunarráðuneytinu?