náttúruvernd.
Virðulegi forseti. Hæstv. ráðherra fór yfir það í ræðu sinni að verið hefðu tveir valkostir í boði að hans mati. Ef ég set mig í spor hæstv. ráðherra og er ósátt við lögin eins og þau líta út þá benti hæstv. ráðherra sjálfur á að hinn valkosturinn hafi verið að fresta gildistökunni enn um sinn á meðan unnið væri að úrbótum á lögunum. Það hefði ég sjálf talið miklu eðlilegri framkvæmd, því að með því að leggja til brottfall þeirra laga sem taka eiga gildi í apríl næstkomandi er auðvitað verið að boða óvissu. Eins og ég sagði áðan er fullkomlega óviðunandi að segja: Við ætlum að færa lagaumhverfið til baka í tíma í raun og veru til 1999, eftir alla þá vinnu og alla þá umræðu sem hér hefur farið fram. Auðvitað hafa orðið verulegar breytingar í atvinnuumræðu og allri þekkingu síðan þá. Það hefði verið eðlilegri ferill að mínu mati að fresta gildistökunni enn um sinn og reyna að gera breytingar á lögunum. Sú tilfinning hlýtur að koma upp í þessari vinnu að í ljósi þess að öll lögin eiga að falla brott sé verið að hverfa frá einhverri heildarhugmyndafræði í lögunum og fara inn á allt aðra braut. Nú á það auðvitað eftir að koma í ljós eins og hæstv. ráðherra hefur sagt, en það er alveg ljóst að óvissan er mikil.