143. löggjafarþing — 24. fundur,  18. nóv. 2013.

náttúruvernd.

167. mál
[16:57]
Horfa

Höskuldur Þórhallsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég man ekki betur en að sú ríkisstjórn sem starfaði hér á síðasta kjörtímabili hafi frestað gildistöku vatnalaga og fellt svo úr gildi. Ég held að við horfum ekki fram á algjörlega glæný vinnubrögð þegar kemur að einhverju sem snýr að umhverfinu. En ég er ósammála hv. þingmanni um að hér sé litið algjörlega fram hjá þeirri vinnu sem þó hefur verið unnin síðustu ár. Ég er þeirrar skoðunar að ef menn vilja raunverulega vanda sig sé betra að fella lögin úr gildi og hefja strax ítarlega og vandaða vinnu við gerð nýrra náttúruverndarlaga.

Virðulegi forseti og hv. þm. Katrín Jakobsdóttir. Vonandi næst meiri sátt um þau lög vegna þess að ég er alveg viss um að þingmaðurinn, sem ég veit að er sanngjörn, er (Forseti hringir.) sammála mér um að engin sátt hafi ríkt um þau lög sem hér er verið að leggja til að verði felld úr gildi.