143. löggjafarþing — 24. fundur,  18. nóv. 2013.

náttúruvernd.

167. mál
[16:58]
Horfa

Katrín Jakobsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Í greinargerð með þessu frumvarpi um brottfall laga um náttúruvernd kemur fram að ljóst sé að vinna við endurskoðun laganna verði tímafrek þar sem um afar flókinn og viðamikinn lagabálk sé að ræða og þess vegna sé lagt til að þessi lög falli brott og nýtt frumvarp verði lagt fram síðar. Mér finnst þessi skilaboð bera með sér að það eigi að hefja vinnu frá grunni og þess vegna segi ég að það sé verið að skapa hér gríðarlega óvissu. Það er verið að gefa til kynna að við séum að setja til hliðar alla þá vinnu sem unnin hefur verið, það er verið að boða afturhvarf.

Það er það sem er hægt að lesa úr greinargerðinni með þessu frumvarpi. Það eru skilaboðin sem eru send út, að það sé gríðarleg vinna eftir við að smíða nýtt frumvarp og við höfum enn þá ekki fengið skýr svör um það hver nákvæmlega heildarbreytingin á þessum lögum (Forseti hringir.) frá þeim lögum sem eiga að taka gildi í apríl verður. Við höfum ekki enn fengið þau svör í þessari umræðu.