náttúruvernd.
Virðulegi forseti. Ég held að hv. þingmaður hafi hitt naglann á höfuðið. Það er augljóst að setja þarf miklu meiri fjármuni í uppbyggingu á ferðamannastöðum, í eftirlit, í hreina og klára náttúruvernd á landinu, en verið er að gera og mun meiri fjármuni en gert er ráð fyrir að bæta í miðað við þau náttúruverndarlög sem hér eru til umfjöllunar. Það er mikill ágangur á mjög mörg viðkvæm svæði og við eigum að hafa í huga að það að eiga hreina og ósnortna náttúru er ekki sjálfgefið og er ekki eitthvað sem menn geta bara gert ráð fyrir að sjái um sig sjálft, það er af og frá, sérstaklega þegar ágangurinn er vaxandi eins og nú er.