ný stofnun um borgaraleg réttindi.
Virðulegi forseti. Ég þakka líka kærlega fyrir þessa umræðu. Það er áhugavert að heyra skoðanir manna á þessum tillögum hjá hagræðingarhópnum og að einhverju leyti því sem snýr að þeirri vinnu sem hefur verið í gangi í ráðuneytinu.
Hugmyndin varðandi þessi þrjú verkefni sem eru hjá velferðarráðuneytinu í þessari tillögu er sú að stofnunin annist þá fræðslu- og upplýsingastarfsemi og fylgist með þróun á sviði jafnréttismála í samfélaginu, vinni að skýrslugerð og könnunum á sviði jafnréttismála, veiti ýmsum aðilum ráðgjöf og aðstoð á sviði jafnréttismála og komi á framfæri við ráðherra og önnur stjórnvöld ábendingum og tillögum um aðgerðir á sviði jafnréttismála.
Einnig er lögð áhersla á að auka virkni sem flestra til að sem flestir taki þátt í að móta samfélagið hér á landi sem grundvallast á jafnri stöðu einstaklinga og stuðla að virku samráði við samtök aðila á vinnumarkaði og frjáls félagasamtök um hvernig tryggja megi framgang jafnrar meðferðar á sem skilvirkastan hátt í samfélaginu. Hún á að vinna að forvörnum, gegn kynbundnu ofbeldi, neikvæðum staðalímyndum og launamisrétti og annarri mismunun á sviði jafnréttismála sem hefur viðgengist í samfélaginu og þá einkum á vinnumarkaði og mun sinna sérhæfðri þjónustu. Í framhaldi af því sem kom fram í umræðunni er hægt að benda á að hún mun, ef þetta verður að raunveruleika, veita sveitarfélögum ráðgjöf við móttöku til dæmis innflytjenda og sjá um upplýsingamiðlun til innflytjenda. Hún mundi einnig annast réttindagæslu fyrir fatlað fólk, hafa eftirlit með réttindagæslumönnum fatlaðs fólks og sjá um fræðslu- og upplýsingastarf um réttindi fatlaðs fólks.
Hér eru alls ekki nefnd öll þau verkefni sem stofnunin mundi sinna en ég nefndi dæmi um slík verkefni. Verkefnin sem heyra undir framkvæmdaáætlun um málefni fatlaðs fólks, Fjölmenningarsetrið, Jafnréttisstofa, innflytjendaráð, réttindagæslumenn og réttindavaktin fengu árið 2013 222 milljónir til ráðstöfunar og samkvæmt fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir 229 milljónum.
Ég vil líka minna á að þetta tengist ekki Mannréttindaskrifstofu Íslands því að frjáls félagasamtök standa að henni. Það er lögð mikil áhersla á að það sé annars vegar það sem snýr að stjórnsýslunni, stofnun á vegum hins opinbera, og hins vegar mjög mikilvægt að hafa sjálfstæða stofnun sem er á vegum frjálsra félagasamtaka til þess einmitt að halda stjórnvöldum við efnið.