143. löggjafarþing — 25. fundur,  19. nóv. 2013.

náttúruvernd.

167. mál
[17:52]
Horfa

Hjálmar Bogi Hafliðason (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég geri ráð fyrir því að á síðasta kjörtímabili hafi verið hér meiri hluti sem hefði getað klárað þetta mál hefði hann viljað gera það. Ég skil ekki hvers vegna hér er vitnað í málþóf. Ég er búinn að sitja hér í salnum síðan málið byrjaði, tökum bara tvær síðustu klukkustundir. Það hefur nánast engin eða mjög lítil efnisleg umræða farið fram og þingmaðurinn sem var hér áðan var til dæmis ekki í salnum í gær þegar við vorum að ræða þetta mál.

Hér fer fram lítil efnisleg umræða um þetta mál. Hér eru sem sagt minni hluti og meiri hluti. Þannig er það bara.