tillögur ríkisstjórnarinnar um skuldaleiðréttingu.
Virðulegur forseti. Ég fagna því að hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra telji ekki viðeigandi að munnhöggvast við stjórnendur Seðlabankans í opinberri umræðu eða gera þeim upp einhverjar sakir hér á nefndarfundum í Alþingi. Þeir voru ekki að gera annað en að bregðast við spurningum sem til þeirra var beint, eins og ætlast er til af gestum. Svo tek ég undir það með hæstv. fjármálaráðherra að það væri miklu betra að við gætum rætt efni þeirra tillagna sem fram koma vegna þess að mikilvægt er að við fáum fram tillögur um skuldaleiðréttingar hjá því fólki sem er að stríða við allt of mikla skuldsetningu eftir hrunið. Því miður hefur okkur í minni hlutanum ekki verið hleypt að því borði með okkar tillögur og sjónarmið og höfum þess vegna orðið að giska á hvað kunni að vera í pakkanum. Ég inni þá hæstv. fjármálaráðherra eftir því hvort hann staðfesti ekki yfirlýsingu Elsu Láru Arnardóttur frá því í gær um að von sé á þessu núna fyrir mánaðamótin.