málefni RÚV.
Virðulegur forseti. Þetta er mikilsverð umræða. Ég tel Ríkisútvarpið vera eina af mikilvægustu stofnunum landsins, ríkisins. Ég er hjartanlega sammála hæstv. ráðherra um að Rás 1 skipti okkur gífurlega miklu máli út frá öryggissjónarmiði, menningarsjónarmiði og öllum sjónarmiðum. En það er meira en Rás 1 sem skiptir máli, Ríkisútvarpið allt skiptir máli, sjónvarpsútsendingarnar skipta máli, fréttastofan skiptir máli.
Þess vegna finnst mér svolítið athyglisvert að heyra hér í umræðunni að breytingin sem gerð var á stjórn Ríkisútvarpsins í vor — hún var fyrsta vísbendingin um að þessi ríkisstjórn vildi stjórnmálavæða alla hluti aftur og þyrfti að hafa sitt fólk á sínum stað og það var ekki bara vegna þess, eins og hæstv. ráðherrann sagði, að Kolbrún Halldórsdóttir átti að koma þar að málum. Það er alltaf þannig að ef einhver sem ekki er sjálfstæðismaður kemur einhvers staðar að málum verða þau hápólitísk. Við eigum væntanlega öll að vera eins og Haukur pressari sem sagði við Pétur heitinn Pétursson þul: Pétur, vertu ekki alltaf að rífast, vertu eins og ég, vertu hlutlaus og gakktu í Vörð.
Alla vega skiptir þetta gífurlegu máli og það var engin tilviljun að gert var ráð fyrir því að það yrði markaður tekjustofn fyrir Ríkisútvarpið, það var til þess að Ríkisútvarpið vissi að hverju það gengi. Mér finnst líka skrýtið að Sjálfstæðisflokkurinn skuli alltaf vera ósamkvæmur sjálfum sér, það eru einmitt þeir sem reka frjálsa fjölmiðla sem fögnuðu því að Ríkisútvarpið væri tekið út af (Forseti hringir.) auglýsingamarkaði, en núna (Forseti hringir.) snýr Sjálfstæðisflokkurinn því líka við. (Forseti hringir.) Maður veit aldrei hvert þessi flokkur er að fara. (Forseti hringir.)