143. löggjafarþing — 26. fundur,  20. nóv. 2013.

málefni RÚV.

[16:16]
Horfa

Katrín Jakobsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmönnum umræðuna. Mér finnst ástæða til að ítreka að ég óskaði eftir þessari umræðu meðal annars vegna þeirrar umræðu sem orðið hefur um hljóðvarp og þess vegna lagði ég áherslu á menningarhlutverkið í máli mínu. Það er ekki þar með sagt að Ríkisútvarpið hafi ekki öðrum hlutverkum að gegna hvað varðar að þjóna byggðum landsins, hvað varðar fréttahlutverk og lýðræðishlutverk og það má ekki líta þannig á orð mín að ég sé að gera lítið úr öðrum hlutverkum. Hreint ekki.

Ég vil líka nefna, af því að hv. þm. Ragnheiður Ríkharðsdóttir ræddi um þá nýjung mína að útvarpsgjaldið ætti að vera markað, að það var ekki meiri nýjung en svo að hv. fyrrverandi. menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, var líka með þá nýjung í frumvarpinu 2007 þegar nefskatturinn var tekinn upp og þá voru tekjurnar markaðar. Því var svo kippt úr sambandi í hruninu. Við skulum halda sögunni til haga. Af hverju voru tekjurnar markaðar hjá þessum tveimur fyrrverandi ráðherrum? Af því að um Ríkisútvarpið gilda önnur lögmál en um þær stofnanir sem við erum að fást við vegna þess að það er fjölmiðill. Þetta er fjölmiðill og það er mikilvægt, eins og hv. þm. Birgitta Jónsdóttir sagði, að tryggja sjálfstæði fjölmiðilsins. Þess vegna fara allar nágrannaþjóðir okkar þær leiðir að hafa ýmist afnotagjöld eða afmarkaða skattheimtu og eru ekki með almannaþjónustumiðlana á fjárlögum.

Það sama er hægt að segja um auglýsingamarkaðinn, þ.e. nágrannaþjóðir okkar fara flestar þá leið að vera ekki með almannaþjónustumiðla sína á auglýsingamarkaði. Við skerum okkur því úr á báðum þessum sviðum. Þess vegna lagði ég gríðarleg áhersla á að tekjurnar yrðu markaðar frá og með árinu 2014. En ég legg áherslu á, af því að tíminn er stuttur hér og margt sem maður hefur að segja, að þurfi að hagræða hjá Ríkisútvarpinu sé það gert í samræmi við lögbundið hlutverk og þær áherslur sem markaðar eru í þjónustusamningi, að Ríkisútvarpinu sé ekki ýtt þá leið að það þurfi að leggja aukna áherslu á öflun tekna í gegnum auglýsingar og láta það að einhverju leyti verða til þess að sú dagskrá sem dregur að fleiri auglýsingar sé forgangsraðað umfram aðra dagskrá. Þess vegna erum við með (Forseti hringir.) almannaþjónustumiðil. Ég tel ekki að það hlutverk sé þröngt. (Forseti hringir.) Ríkisútvarpið á líka að vera til skemmtunar, eins og hér hefur verið nefnt, (Forseti hringir.) en það þarf að vera fjölbreytt.