náttúruvernd.
Hæstv. forseti. Þar greinir okkur hv. þingmann á. Ég tel að það sé ekki óðs manns æði að afnema lögin frá því í fyrravor. Ég held að með því að nálgast málið með þeim hætti séum við hins vegar að taka af þá tímapressu sem 1. apríl skapar. Ég held að það séu skynsamleg vinnubrögð vegna þess að ljóst er að það eru fjölmörg atriði í þessum lögum sem alla vega þingmenn og ráðherrar núverandi stjórnarflokka hafa áhuga á að endurskoða, breyta og vilja beita sér fyrir samstöðu um það sem skilið var við í miklu uppnámi og í mjög umdeildu horfi þegar frá málinu var gengið sl. vor. Ég held að okkur veiti ekkert af því að hafa sæmilega rúman tíma til þess.
Ég vil undirstrika að frá mínum bæjardyrum séð er það ekki svo að ákvörðunin um að fella lögin frá því í vor úr gildi feli í sér að henda eigi allri þeirri vinnu sem unnin hefur verið í aðdraganda málsins, alls ekki. Með því að nálgast málið með þessum hætti, eins og hæstv. ráðherra leggur til, er tekin af tímapressan 1. apríl og meira ráðrúm gefst til þess að leita að heppilegri niðurstöðu.