143. löggjafarþing — 26. fundur,  20. nóv. 2013.

náttúruvernd.

167. mál
[16:52]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mér finnst þingmaðurinn vera í mótsögn við sjálfan sig. Áðan kom hann inn á að menn hefðu ekki verið efnislega sammála niðurstöðu þessa frumvarps í vor en ákveðið að gera samkomulag um að hleypa því í gegn vegna þess að það væri rúmur tími til að fara yfir og skoða málið fram til 1. apríl 2014. Með því að afturkalla lögin núna standa menn ekki við það að ætla að nýta tímann frá síðastliðnu vori til 1. apríl á næsta ári til þess að gera akkúrat þetta, sem var þó meiningin og hv. þingmaður kom inn á hérna áðan. Væri ekki eðlilegra að menn færu í þessa vinnu? Ef fyrir lægi að þeir næðu ekki að sníða einhverja agnúa af á þessum tíma og ekkert væri fram undan annað gæti sá meiri hluti sem nú er við völd staðið fyrir því að afturkalla þessi lög.

Það hlýtur að vera meiningin, eins og hv. þingmaður kom hérna inn á áðan, ef menn hafa verið heilir í því, að nýta þennan tíma til einhvers en ekki rjúka beint í að afturkalla lögin. Þetta stangast á, hv. þingmaður. Það getur vel verið að hv. þingmaður hafi frekar viljað vinna þetta í góðu tómi með nefndinni. Ég hef trú á því. Hæstv. ráðherra Framsóknarflokksins rýkur hins vegar í þetta, sem ég tel vera óðs manns æði og ekki til fyrirmyndar og ekki góð vinnubrögð af hæstv. umhverfisráðherra.