náttúruvernd.
Virðulegur forseti. Ég hef ekki séð þá færslu sem hv. þingmaður vísar til, hafða eftir fyrrverandi hv. þm. Merði Árnasyni. En í nefndinni fóru fram töluverðar umræður um þetta mál en það er alveg örugglega alveg rétt munað hjá Merði Árnasyni að ekki voru miklar deilur um málið í sjálfu sér í nefndinni eða mikill meiningarmunur að heyra gagnvart einstökum efnisatriðum. Hann kom fyrst og fremst fram á síðari stigum þegar búið var að ganga frá meirihlutanefndaráliti og ég var þá fyrst var við að það væru í raun og veru einhver efnisatriði sem menn höfðu eitthvað að athuga við.
Ég held að ef þau efnisatriði hefðu komið almennilega og skýrt fram í nefndinni hefði verið lítið mál að bregðast við og finna málamiðlun um þau. Það er tilfinning mín gagnvart þessu máli og það er mín tilfinning líka gagnvart þeirri stöðu sem málið er komið í núna að hlaupin sé pólitík í það, því miður, vegna þess að þetta er gríðarlega metnaðarfull löggjöf, gríðarlega mikilvæg löggjöf sem þarf að vera góð sátt um. Og vegna þess að hér hafa nánast eingöngu talsmenn minni hlutans flutt ræður um málið hefur maður í raun og veru ekki miklar hugmyndir um hvaða skoðanir þingmenn meiri hlutans hafa á frumvarpinu, þ.e. að fella lögin algjörlega úr gildi. Það er auðvitað til mikils skaða fyrir umræðuna að menn skiptist ekki á skoðunum hérna um þetta.