náttúruvernd.
Virðulegur forseti. Ég sakna þess fyrst og fremst að eiga efnislega umræðu við þá sem flytja málið og bera á því ábyrgð. Ég rakti og fór í langri ræðu í gær efnislega yfir hvert atriði í rökstuðningi hæstv. ráðherra fyrir málinu. Þar var til dæmis talað um að samskipti stofnana sem fara með náttúruvernd þyrftu að vera afmörkuð skýrar, samskipti sveitarfélaga og stofnana þyrftu að vera afmörkuð skýrar.
Einnig var sagt að verið væri að ganga á rétt landeigenda. Ég rakti það og las upp úr lögunum að ráðherra er auðvitað í sjálfsvald sett að setja reglugerð um þau atriði sem honum finnast óskýr í málinu. Það eru ákvæði í lögunum um það. Það er á engan hátt verið að ganga á rétt landeiganda, verið er að afmarka með skýrari hætti en áður hefur verið gert í hvaða tilfellum hann hefur heimild til þess að banna för um land sitt og verið er að skilgreina hvernig það megi gera. Ég segi það í fúlustu alvöru vegna þess að hér á þingi eru mjög margir nýir þingmenn sem hafa ekki komið að náttúruverndarlögunum að ég sakna þess mjög að vera ekki með dýpri umræðu.
Til dæmis flutti varaþingmaður í gær ágæta ræðu sem sveitarstjórnarmaður sem dýpkaði mjög umræðuna, hafði þekkingu á náttúruverndarnefndum, á málaflokknum út frá sjónarhóli sveitarstjórnarmanns sem dýpkaði umræðuna mjög. Ég held að menn gætu lært mikið af því að hlusta á þá og þá sem eru kannski talsmenn annarra sjónarmiða, til dæmis þegar kemur að varúðarreglunni, ef þeir mundu koma hingað upp og skýra mál sitt. Það væri gott fyrir umræðuna um málið.