náttúruvernd.
Hæstv. forseti. Ég ætla að reyna að svara þessu eins vel og ég get. Ég álít að það sé skynsamleg og raunsæ leið hjá hæstv. umhverfisráðherra að leggja til að málið verði nálgast með þeim hætti að lögin frá síðasta vori verði afnumin en jafnframt verði hafist handa við undirbúning nýs lagafrumvarps sem feli þá í sér endurskoðun náttúruverndarlaga.
Eins og hæstv. ráðherra rakti í framsöguræðu sinni hefði verið hægt að fara ýmsar aðrar leiðir. Það hefði verið hægt að leggja fram frumvarp um enn frekari frestun gildistöku eða eitthvað þess háttar. Ég held að það sé ágætt að aftengja dagsetninguna 1. apríl í því sambandi vegna þess að ég er sannfærður um það eftir reynsluna frá síðasta vetri að það muni taka lengri tíma að fara yfir álitaefnin í þessu og ná samkomulagi en tími til þess varir. (Forseti hringir.)
(Forseti (ValG): Forseti vill upplýsa þingmenn um að eins og staðan er núna er tímamælingin frosin hjá okkur þannig að við þurfum að taka tíma á okkar eigin klukku.)