143. löggjafarþing — 26. fundur,  20. nóv. 2013.

náttúruvernd.

167. mál
[18:41]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég lagði svona mikið púður í að útskýra núgildandi lög um akstur utan vega vegna þess að það mátti skilja það á ræðum einstakra þingmanna, sérstaklega hér í gær, að það væru hreinlega engin lög og engin löggjöf á þessu sviði og hér væri hreint út sagt villta vestrið. Við vitum auðvitað að um þetta eru lög, en það er hins vegar erfitt að framfylgja þeim. Þær tillögur sem birtust í frumvarpi sem á að verða að lögum 1. apríl nk. leystu ekki þann vanda til hlítar. Ég held að það viti allir sem eru í þessum þingsal, m.a. þess vegna var sett inn bráðabirgðaákvæðið um að fara yfir þetta að nýju.

Ég tel mikilvægt að við getum og munum reyna að setjast niður með þeim aðilum sem gerðu mestar athugasemdir við m.a. þetta mál eins og önnur og reyna að finna sátt og koma með niðurstöðuna sem hraðast hingað inn í þingsal að nýju í formi nýs frumvarps um náttúruverndarlög.