143. löggjafarþing — 26. fundur,  20. nóv. 2013.

náttúruvernd.

167. mál
[18:44]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Varðandi þær persónulegu ávirðingar sem hv. þingmaður kýs að nota hér í lok umræðunnar mun ég svo sem ekki svara. Mér finnst það ekki við hæfi þegar við erum að tala um mikilvægan málaflokk eins og náttúruvernd og náttúruna að leggjast í persónulegt niðurtal.

Hvað varðar þá yfirlýsingu sem hv. þingmaður hefur nokkrum sinnum komið fram með, að það hafi verið fyrsta verk þess sem hér stendur að leggja til að leggja niður umhverfisráðuneytið, þá er það auðvitað útúrsnúningur af versta tagi. Í löngu blaðaviðtali sagði sá sem hér stendur að í hinum fullkomna heimi þyrfti hvorki umhverfisráðuneyti né reyndar jafnréttisráðuneyti eða eitthvað slíkt, (Gripið fram í.) og jafnvel ekki Framsóknarflokkinn í hinum fullkomna heimi. En við búum bara ekki í hinum fullkomna heimi og þess vegna þurfum við á öllu þessu þrennu að halda og jafnvel einhverju meiru.

Ég geri mér fullkomlega grein fyrir að í þessum þingsal og í pólitík á Íslandi eru ólík sjónarmið. Það er hins vegar ekki þannig að þeir séu eitthvað fjær hagsmunum náttúrunnar, þeir sem stýra sveitarfélögunum í landinu, á hinu stjórnsýslustiginu. Það er heldur ekki þannig að þeir séu eitthvað fjær hagsmunum náttúrunnar sem vilja nýta allan sinn frítíma til að ferðast um og njóta náttúrunnar.

Það eru aftur á móti til þau sjónarmið og því miður þau öfl sem hafa jafnvel reynt að gera það að einhverri pólitík að þeir aðilar séu verri verðir náttúrunnar en aðrir. Ég fellst ekki á slík rök. Ég vil heyra og sjá öll rök á jafnræðisgrundvelli, vega þau og meta, og ég trúi því að hægt sé að ná meiri sátt en náðist í frumvarpi fyrrverandi umhverfisráðherra, núverandi hv. þm. Svandísar Svavarsdóttur.