náttúruvernd.
Frú forseti. Ég vildi í lok þessarar umræðu tjá hryggð mína yfir því hvernig hæstv. ráðherra tekur því sem ég get ekki kallað annað en mjög óvanalegt boð af hálfu stjórnarandstöðunnar um það að reyna að ná sáttum í þessu máli. Ég skil vel og er kannski manna fyrstur til þess að skilja það þegar menn koma stríðsmóðir úr kosningabaráttu í áflogaham og eiga erfitt með að kasta honum og vilja helst jafna um hina nýju stjórnarandstöðu sem þeir litu hugsanlega á sem kvalara sína á síðasta kjörtímabili. Ég hef fullan skilning á því. En nú er hæstv. ráðherra búinn að hlaupa af sér hornin, hann hefur verið ráðherra í sex mánuði og menn geta haft sínar skoðanir á því hvernig hann fór af stað en ég er sannfærður um og hef verið það fram undir það síðasta að hæstv. ráðherra vilji vel, að hann vilji reyna að ná friði um viðkvæmasta málaflokkurinn af þeim sem undir hann heyra.
Ég held að það hafi aldrei gerst á minni lífsfæddri þingmannstíð að þingmenn eins og hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon hafi komið hingað og bókstaflega boðið það að vinna með stjórninni að tilteknum málum. Það er mjög erfitt fyrir okkur sem komum þannig til dyranna hingað í ræðustól að skilja hæstv. ráðherra öðruvísi en svo að hann boði ófrið um náttúruvernd á Íslandi. Við hljótum að ræða þessi mál á grundvelli hans eigin máls, hans eigin greinargerðar. Það hefur komið mjög skýrt fram í máli hans að það eru fyrst og fremst tvö atriði sem erfitt yrði að ná sátt um. Það er annars vegar færsla á skipulagsvaldi til ríkisins og hins vegar utanvegaakstur. Að öðru leyti eru í þeim lögum sem hann vill fella úr gildi mörg nýmæli sem margir hafa barist lengi fyrir. Ég hef til dæmis og lýsti hér mjög ærlega í löngu máli af hverju ég væri reiðubúinn að ganga mjög langt til þess að ná þeim inn í rétt Íslands. Hæstv. ráðherra vill ekki einu sinni reyna það.
Hæstv. ráðherra sagði í lokaræðu sinni að það væri líka mikilvægt að ná sátt við sveitarfélögin í landinu. Ég er sammála honum um það. Hann telur síðan upp mörg samtök sem er mikilvægt að ná sáttum við. Ég er sammála honum um það líka. Ég ætla ekki að álasa hæstv. ráðherra fyrir það að hafa hugsanlega eytt sex mánuðum í ekki neitt en hann hefði getað byrjað slíka sáttaför strax þegar hann settist inn í ráðuneytið, en nótt er ekki öll úti enn. Við höfum bent á það hér að töluverður tími er þangað til að 1. apríl rennur upp. Hann gæti hugsanlega tekið sáttaboði stjórnarandstöðunnar og reynt að finna sátt millum hennar og ríkisstjórnarinnar fram til 1. apríl. Ef eitthvað stæði út af væri hægt að fella burt hluta af þessum lögum eða fara í þann leiðangur sem hann boðar núna ef hann telur að öll nótt verði þá úti. Hvoru tveggja gæti hann gert. Hann mundi einskis missa.
Hæstv. ráðherra er í reynd að lýsa því yfir að hann vilji ekki reyna þessa sáttaferð á hendur stjórnarandstöðunni eða með henni. Hann vill einfaldlega hafa málin með þessum hætti. Þá verður maður að velta því fyrir sér hvað vaki fyrir honum. Ég held að það sé ekki nein persónuleg för hans. Það hlýtur þá að vera stefna ríkisstjórnarinnar sem hann situr í sem ræður för. Hún vill ekki frið við okkur í stjórnarandstöðunni um náttúruvernd vegna þess að hún hlýtur að sigla eftir sjókorti sem hún veit að er óásættanlegt af hálfu stjórnarandstöðunnar. Hvað er þetta sjókort? Getur verið að það sem fyrir henni vakir sé eitthvað sem er þess eðlis að það sé háskalegt og skaðlegt fyrir þann leiðangur að hafa lög af þessu tagi til að þvælast fyrir fótum sér? Og hvað er það þá? Menn verða bara að ráða í þær vísbendingar sem hæstv. ríkisstjórn hefur sjálf gefið frá sér. Hverjar eru þær? Það liggur alveg ljóst fyrir hvert hugur hæstv. ráðherra og margra ráðherra hafa til dæmis verið gagnvart Norðlingaölduveitu. Þá skal ég segja hæstv. ráðherra að þó að ég sé í þeim armi Samfylkingarinnar sem hugsanlega er hallari undir nýtingu en aðrir þá skal hún aldrei verða meðan ég fæ nokkru um ráðið og meðan ég er enn á þingdögum.
Hæstv. ráðherra veit það vel að sumir kollega hans hafa dregið upp ákveðið kort. Hér lýsti hæstv. viðskipta- og iðnaðarráðherra því nánast yfir á dögunum að hún væri ósátt við þá stefnu sem Landsvirkjun hefur varðandi raforkusölu. Í kjölfar þess sendir hæstv. fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins bréf til annarra stjórnmálaflokka og biður um tilnefningar í stjórn Landsvirkjunar. Hvað á að gera? Skipta um mannskap, skipta um stefnu, spretta upp rammaáætlun? Það er auðvitað út af þessu (Forseti hringir.) sem ríkisstjórnin vill ekki ný náttúruverndarlög sem þvælast fyrir leiðangrinum.