jöfn staða og jafn réttur kvenna og karla.
Virðulegi forseti. Mig langaði rétt aðeins að koma inn í umræðuna Ég held að þetta sé afar gott mál, alla vega finnst mér það svona fyrsta kastið eftir að hafa lesið yfir það. Mér fannst það afar áhugavert sem hæstv. ráðherra endaði mál sitt varðandi tryggingastarfsemina og kynjabreyturnar. Við vonum að velferðarnefnd fái a.m.k. þær tölur er varða útreikninga í þessu sambandi því að það er nokkuð ljóst að þetta leiðir alveg örugglega til hærri iðgjalda fyrir okkur konur. (Gripið fram í.)
Það sem mig langaði til að spyrja hæstv. ráðherra aðeins um og ég hef áhyggjur af varðar jafnlaunastaðalinn. Við höfum öll orðið vör við umræðuna varðandi kynjaskiptingu í ráðum og stjórnum og öðru slíku og hefur það gengið misvel og fengið misjafnar undirtektir. Ég velti fyrir mér hvaða hvata fyrirtæki og stofnanir sjá í því að koma upp þessum staðli og fá þessa vottun, af því að umræðan hefur verið svolítið á þann veg að margt af því sem við höfum verið að gera sé illframkvæmanlegt og eigi ekki við alls staðar o.s.frv. Vissulega er það að einhverju leyti rétt. En ég velti því bara fyrir mér hvaða hvata ráðherrann sjái sem ættu að ýta undir það að sem allra flest fyrirtæki og stofnanir taki þetta upp hjá sér og innleiði það.