143. löggjafarþing — 27. fundur,  27. nóv. 2013.

mannabreytingar í nefndum.

[15:02]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Forseta hefur borist erindi frá þingflokki Pírata, dagsett í dag, um mannaskipti í nefndum þingsins, samanber 16. gr. þingskapa, að Birgitta Jónsdóttir taki sæti Jóns Þórs Ólafssonar í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd en Jón taki sæti Birgittu í umhverfis- og samgöngunefnd. Þessar breytingar skoðast samþykktar án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum.