143. löggjafarþing — 28. fundur,  28. nóv. 2013.

fjáraukalög 2013.

199. mál
[14:43]
Horfa

Kristján L. Möller (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Í einnar mínútu andsvari get ég ekki annað en fjalla um þær fyrirhuguðu aðgerðir sem boðaðar verða á morgun og eru kosningaloforð Framsóknarflokksins um leiðréttingu upp á 300–340 milljarða kr., plús þær leiðir sem verið er að blanda inn í þær aðgerðir frá Sjálfstæðisflokknum, um að nota séreignarlífeyrissparnaðinn. Það mun hafa mikil áhrif á ríkisfjármál strax og aðgerðirnar verða kynntar. Þetta verður ekki gert öðruvísi en með því að auka skuldir ríkissjóðs. Ekki eru peningarnir sem áttu að fara í þetta að koma, samkvæmt Morgunblaðinu og því sem menn hafa sagt, m.a. hæstv. fjármálaráðherra, þá hafa viðræður við kröfuhafa ekki skilað þeim árangri.

Þess vegna spyr ég aftur: Munu skuldavandatillögurnar sem koma á morgun ekki strax hafa áhrif? Er t.d. búið að kanna hvort lánshæfismat breytist eitthvað frá og með þeim degi?

Nú geri ég ráð fyrir að þessar tillögur verði ekki kynntar fyrr en eftir lokun Kauphallar á morgun vegna þess að þetta getur haft mjög mikil áhrif á (Forseti hringir.) skuldabréfamarkaðinn á Íslandi svo að eitt lítið dæmi sé bara nefnt.