143. löggjafarþing — 28. fundur, 28. nóv. 2013.
tekjuskattur.
175. mál
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Sigrúnu Magnúsdóttur fyrir að tala á jákvæðum nótum um þetta frumvarp. Ég tek undir orð hv. þingmanns og ég vona að frumvarpið fái hljómgrunn í þinginu því ég tel að það sé öllum til góðs að reyna að spara, bæði einstaklingum og þjóðfélaginu okkar og að spara vegna þess að það er hagkvæmara fyrir okkur öll.