143. löggjafarþing — 29. fundur,  29. nóv. 2013.

stefna ríkisstjórnarinnar gagnvart RÚV.

[10:50]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Ég vil beina fyrirspurn til hæstv. forsætisráðherra. Nú hafa málefni RÚV verið mikið í umfjöllun og Framsóknarflokkurinn hefur hingað til talið sig vera talsmann öflugs Ríkisútvarps. Á flokksþingi framsóknarmanna í febrúar síðastliðnum kom fram samþykkt þar sem þeir segja, með leyfi forseta:

„Fjölmiðlar eru mikilvæg upplýsingaveita almennings í lýðræðislegu samfélagi. Auka þarf gagnsæi um útbreidda fjölmiðla þannig að eignarhald sé skýrt sem og til að koma í veg fyrir samþjöppun. Ríkisútvarpið gegnir mikilvægu hlutverki í íslensku samfélagi með aðhaldi og hlutlægri umfjöllun um íslenskt samfélag. Á RÚV hvílir rík, lýðræðis- og samfélagsleg skylda og því ber að þjóna öllu landinu. Útvarpsgjaldið verður því að renna óskipt til RÚV.“

Ég vil því spyrja hæstv. forsætisráðherra: Hvað hefur breyst?

Hinn 11. september er haft eftir hæstv. forsætisráðherra, Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, í Kastljósinu um niðurskurð hjá RÚV, með leyfi forseta: „En ég get þó sagt hvað varðar þessar spurningar þínar almennt að það stendur ekkert slíkt til, ekki að fara að taka Kvikmyndasjóð út sérstaklega eða skera miklu meira niður hjá Ríkisútvarpinu en annars staðar. Það er alls ekki á dagskrá.“ Þetta segir hæstv. forsætisráðherra.

En nú liggur fyrir 500 millj. kr. hagræðingarkrafa á Ríkisútvarpið og við blasir að 60 starfsmenn Ríkisútvarpsins gætu misst starf sitt. Ég tel því að þarna hafi orðið mikil stefnubreyting hjá Framsóknarflokknum sem ég geri kröfu til að hæstv. forsætisráðherra, sem mikið hefur talað fyrir þjóðmenningu, útskýri fyrir okkur hv. þingmönnum og landsmönnum öllum hvort Framsóknarflokkurinn sé farinn af þeirri (Forseti hringir.) braut að standa vörð um öflugt Ríkisútvarp.