seinkun klukkunnar og bjartari morgnar.
Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir þessa tillögu, hún vekur upp margar áhugaverðar spurningar og þetta er líka umræða sem áður hefur komið upp á Alþingi.
Mig langaði kannski að biðja hv. þingmann um að fara aðeins betur yfir þessar rannsóknir. Við erum nú öll ólík og það er líka til fólk sem kann vel við það — kannski af því að ég er fædd í lok nóvember þá finnst mér gott að vakna í myrkri á morgnana, kveikja á kertum og fara á rómantísku nótunum inn í daginn en eiga síðan bjartan tíma með börnunum seinni partinn. Það er slen í mörgum seinni partinn, þeir koma litlu í verk, það eru svokallaðar A-týpur eins og gjarnan er talað um sem hugsanlega koma miklu í verk í myrkrinu á morgnana og minna seinni partinn, hvort þetta gæti ekki haft neikvæð áhrif á þá hópa. Það væri áhugavert fyrir nefndina að fara í gegnum þetta allt saman af því að þetta eru raunverulega mjög ólík sjónarmið.
Ég held að við eigum ekki að taka léttvægt á þessari umræðu. Það er ekki einfalt mál að skutla klukkunni til hjá fólki sem hefur hugsanlega um langa hríð komið sér upp rútínu sem snýst um þá klukku sem við búum við núna.