143. löggjafarþing — 29. fundur,  29. nóv. 2013.

seinkun klukkunnar og bjartari morgnar.

197. mál
[11:16]
Horfa

Flm. (Guðmundur Steingrímsson) (Bf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þetta eru auðvitað tvö ólík sjónarmið, en ef við ætlum að ræða um rannsóknir þá ná þær heilt yfir. Auðvitað eru til dæmi um það að fólki finnist huggulegt að vakna í myrkri og það getur þá vaknað aðeins fyrr til að vakna í myrkri ef það vill.

Ástæðan fyrir því að þessi tillaga er lögð fram eru nýjar rannsóknir sem sýna einfaldlega að það að hafa skekkju milli sólargangs og klukkunnar leiðir í stuttu máli til þess að við klárum ekki svefninn. Ákveðin efnaskipti þurfa að fara fram í svefni og þau klárast ekki ef við vöknum of snemma miðað við sólargang. Þetta eru rannsóknir heilt yfir. Það getur vel verið að þetta eigi ekki við hv. þingmann, ég veit það ekki. Mönnum getur alveg liðið ágætlega þótt þetta sé svona. Hins vegar eru margar vísbendingar á Íslandi um að þetta sé hugsanlega orsakavaldur þess að ýmislegt er slæmt hérna. Við Íslendingar notum til dæmis mikið svefnlyf. Við notum mikið þunglyndislyf. Framleiðni á vinnumarkaði er minni hér. Það er mikið brottfall úr skólum. Þetta hefur mikil áhrif á unglinga. Það má því leiða að því líkur að fyrst við höfum klukkuna ranga og fyrst það hefur þau áhrif að við klárum í raun og veru ekki svefninn þá sé samfélagið m.a. þjakað af fyrrnefndum vandamálum.

Ég ítreka að sjónarmiðin verður að vega og meta. Það er til millileið sem flest þjóðfélög fara með því að hafa sumartíma en hér ákváðum við 1968 að hafa sumartíma allt árið sem ég held að hafi verið röng ákvörðun.